Okkar fólk

  • Alfreð Brynjar Kristinsson Alfreð Brynjar Kristinsson Hugbúnaðarsérfræðingur
    512-4312
    alfredattreynd.is

     

  • Alfreð Brynjar Kristinsson

    alfredattreynd.is

    Sími: 512 4312

    Alfreð hóf störf hjá Reynd árið 2011. Alfreð er með MSc gráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í viðskipta- og tölvunarfræði frá St. Andrews University í Norður-Karólínu, Bandaríkjunum. Alfreð hefur umtalsverða reynslu í gagnagreiningu og notkun gagna til ákvarðanatöku í viðskiptum. Meðal verkefna sem Alfreð hefur unnið má nefna verkefni fyrir Samskip þar sem leiðarkerfi fyrirtækisins og samstarfsaðila um allan heim var kortlagt og greint. Einnig vann hann verkefni sem tengdist vildarkerfi N1. Alfreð hefur mikla reynslu í SQL gagnagrunns greiningu og við að búa til BI stjórnendalausnir.

  • Bjarni Gaukur Sigurðsson Bjarni Gaukur Sigurðsson Yfirmaður viðskiptaþróunnar
    512-4308
    gaukurattreynd.is

     

  • Bjarni Gaukur Sigurðsson

    gaukurattreynd.is

    Sími: 512 4308

    Bjarni Gaukur hefur starfað í hugbúnaðargeiranum síðan 1997 sem hugbúnaðarsérfræðingur, ráðgjafi, yfirmaður hugbúnaðarþróunnar og nú síðast sem yfirmaður viðskiptaþróunnar hjá Reynd. Bjarni Gaukur hóf störf hjá Navís sem með tíð og tíma varð Landsteinar Ísland, árið 1997 og starfaði þar sem hugbúnaðarsérfræðingur undir stjórn Jóns Harðar Hafsteinssonar framkvæmdastjóra Reyndar. Skömmu seinna var Bjarni Gaukur gerður að hópstjóra innan hugbúnaðardeildarinnar og leiddi þar teymi af forriturum og tæknilegum ráðgjöfum. Sem slíkur var hann ábyrgur fyrir tæknilegum hluta innleiðinga sem voru sumar af fyrstu innleiðingum á kassakerfinu PlusPOS sem nú er hluti af LS Retail. Árið 2001 flutti Bjarni Gaukur sig um set til Hollands ásamt Jóni Herði og Sigmundi Unnari Traustasyni og stofnaði fyrirtækið Landsteinar Nederland BV. Þar gegndi Bjarni Gaukur stöðu yfirmanns hugbúnaðardeildar allt fram til ársins 2009 þegar hann flutti aftur til Íslands. Árið 2007 sameinaðist Landsteinar Nederland breska fyrirtækinu K3 Business Technology Group. Bjarni Gaukur hefur borið ábyrgð á fjölda innleiðinga á bókhaldslausnum í gegnum tíðina, m.a. hjá Bulgarian Telecom, Kaupás, IKEA víða um heim og fjölda annarra fyrirtækja í Hollandi sem og á Íslandi. Hann hefur einnig verið viðriðinn stjórnun og sölumál um langt skeið. Bjarni Gaukur er með BS gráðu í Tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.

  • Bjarni Gaukur Sigurðsson Guðjón Þór Mathiesen Sölu og Markaðsstjóri
    512-4313
    gudjonattreynd.is

     

  • Guðjón Þór Mathiesen

    gudjonattreynd.is

    Sími: 512 4313

    Guðjón gekk til liðs við Reynd í október 2011. Guðjón er með 15 ára reynslu af sölu og markaðsmálum og hefur starfað hjá bæði stórum og smáum aðilum á því sviði. Guðjón var sölustjóri á fyritækjasviði Símans árin 2005 til 2006 og síðar sem forstöðumaður viðskiptaþróunar árið 2006 og 2007. Árin 2007 til 2011 var Guðjón framkvæmdastjóri fyritækjasviðs eins stærsta verslunarfyrirtækis landsins Pennans. Bæði hjá Pennanum og Símanum sinnti Guðjón þjónustu við stærstu fyrirtæki landsins. Guðjón tók þátt í stefnumótun og breytingaferli hjá Pennanum á umrótatímum sem gengu yfir viðskiptalífið á árunum 2008 til 2011. Guðjón er með BSc gráðu í viðskiptafræðum frá Háskólanum í Reykjavík.

  • Guðlaugur Ingi Guðlaugsson Guðlaugur Ingi GuðlaugssonYfirmaður hugbúnaðarsviðs
    512-4306
    gulliattreynd.is

     

  • Guðlaugur Ingi Guðlaugsson

    gulliattreynd.is

    Sími: 512 4306

    Guðlaugur Ingi hóf stórf hjá Landsteinum Íslandi árið 2000 sem hugbúnaðarsérfræðingur. Hann hafði áður unnið við ýmis störf tengd hugbúnaði meðfram háskólanámi. Innan skamms tíma var hann búin að vinna sig upp sem einn af lykilstarfsmönnum hjá Landsteinum í tæknilegri ráðgjöf og forritun og tók hann þátt í mörgum af stærstu verkefnunm fyrirtækisins á þessum tíma. Árið 2006 hóf Guðlaugur störf hjá Pennanum sem yfirmaður tölvumála, ábyrgur fyrir daglegum rekstri allra tölvukerfa innan fyrirtækisins, þ.m.t. þjónustu við notendur, frekari þróun, samskipti við birgja og stefnumótun. Hann starfaði hjá Pennanum þar til hann hóf störf hjá Reynd í desember 2009. Guðlaugur Ingi er með BSc gráðu í tölvunarfræði og BA gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

  • Halldór Gíslason Halldór Gíslason Hugbúnaðarsérfræðingur
    512-4305
    halldorattreynd.is

     

  • Halldór Gíslason

    halldorattreynd.is

    Sími: 512 4300

    Halldór hefur unnið í upplýsingatæknigeiranum við hönnun, forritun, innleiðingar, ráðgjöf og þjónustu síðan 1985. Fram til 1990 við þróun kerfa fyrir IBM System 34/36/AS400 fyrir ýmis af stærrri fyrirtækjum landsins. 1990-94 lagði hann stund á og lauk námi í Science of Creative Intelligence og stærðfræði við Maharishi University of Management í Iowa. Að námi loknu starfaði hann hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni við ráðgjöf og kennslu til 1996 þegar hann hóf störf hjá EJS við þróun verslunarhugbúnaðar í Oracle. Frá þeim tím fram til 2002 starfaði hann hjá EJS og EJS International við þróun, ráðgjöf, hóp og verkefnastjórn á Íslandi, Ástralínu, Hong Kong og Filippseyjum. Viðfangsefnið þessi ár voru verslunarkerfi í Oracle sem hönnuð voru til að mæta þörfum stórra verslunarkeðja. Árið 2003 hóf hann störf hjá Streng sem síðan varð Landsteinar Strengur og loks SKÝRR þar sem hann starfaði þar til 2011 þegar hann hóf störf hjá Reynd. Hjá Landsteinum Streng tók hann þátt í fjölda innleiðinga á Navision kerfum fyrirtækisins hjá flestum af stærri viðskiptavinum þess með áherslu á verslunar-, veitinga og sérkerfi.

  • Helena Sif Magnúsdóttir Helena Sif Magnúsdóttir Hugbúnaðarsérfræðingur
    512-4300
    helenaattreynd.is

     

  • Helena Sif Magnúsdóttir

    helenaattreynd.is

    Sími: 512 4300

    Helena hóf störf hjá Reynd nóvember 2012 og hefur mikla reynslu af Navision og C/AL forritun. Helena er með BSc. í Tölvunarfræði frá HR, ásamt því að vera vottaður Microscoft Dynamics NAV sérfræðingur. Frá 2011 til október 2012 starfaði Helena hjá Advania sem hugbúnaðarsérfræðingur í Microsoft Dynamics NAV. Í gegnum tímann hefur hún starfað við hin ýmsu þjónustu störf og þar af leiðandi hefur Helena mikla þjónustulund sem nýtist afar vel í ráðgjöf og þjónustu.

  • Ingibjörg Lilja Halldórsdóttir Ingibjörg Lilja Halldórsdóttir Skrifstofustjóri
    512-4309
    ingaattreynd.is

     

  • Ingibjörg Lilja Halldórsdóttir

    ingaattreynd.is

    Sími: 512 4309

    Ingibjörg hóf störf hjá Reynd í september 2011. Ingibjörg er með víðtæka reynslu, hefur unnið við ýmis þjónustu-, bókhalds- og innheimtustörf í gegnum tíðina, aðallega í fjölmiðlageiranum. Má þar til dæmis nefna að Ingibjörg var deildarstjóri smáauglýsingadeildar DV hjá Frjálsri fjölmiðlun hf. í rúm 10 ár, hún var þjónustustjóri hjá Útgáfufélaginu DV ehf., vann á fjármálasviði Fréttar ehf. sem gaf m.a. út Fréttablaðið og DV og svo Innheimtustjóri hjá Viðskiptablaðinu. Ingibjörg lauk námi í Verkefnastjórnun og Leiðtogaþjálfun frá Endurmenntun Háskóla Íslands vorið 2012. Hún er vottaður verkefnisstjóri frá The International Project Management Association.

  • Jóhannes Ellingsen Jóhannes Ellingsen Hugbúnaðarsérfræðingur
    512-4301
    johannesattreynd.is

     

  • Jóhannes Ellingsen

    johannesattreynd.is

    Sími: 512 4301

    Jóhannes hefur unnið við Microsoft Dynamics NAV síðan 1998 þegar hann hóf störf hjá Streng. Þar var Jóhannes m.a. viðriðin innleiðingar á verslanalausninni InfoStore sem í dag er hluti af LS Retail. Á meðal verkefna sem Jóhannes vann við voru verkefni fyrir Baug, á þeim tíma stærsta verslunarfyrirtæki landsins. Einnig starfaði hann fyrir NTC, landsins stærsta verslunarfyrirtæki í tískuvörugeiranum. Enn fremur vann hann við EDI og vöruhúsalausnir fyrir ýmsa viðskiptavini fyrirtækisins. Á milli 2002 og 2007 og aftur á milli 2009 og þar til í maí 2010 þegar hann gekk til liðs við Reynd, starfaði Jóhannes hjá Maritech. Hjá Maritech gegndi hann starfi hugbúnaðarsérfræðings með aðaláherslu á lausnir fyrir fjármála- og framleiðslugeirann. Á milli 2007 og 2009 starfaði Jóhannes hjá Vodafone þar sem hann var ábyrgur fyrir bókhaldslausnum innan fyrirtækisins auk þess að sinna frekari þróun á þeim. Jóhannes nam viðskiptafræði og tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík.

  • Jón Hörður Hafsteinson Jón Hörður Hafsteinson Framkvæmdastjóri
    512-4307
    jonattreynd.is

     

  • Jón Hörður Hafsteinsson

    jonattreynd.is

    Sími: 512 4307

    Jón Hörður á yfir 20 ára feril í hugbúnaðargeiranum ýmist sem hugbúnaðarsérfræðingur, yfirmaður hugbúnaðarþróunnar eða framkvæmdastjóri. Fyrstu kynni Jóns af Microsoft Dynamics NAV, eða Fjölni eins og það hét í þá daga, var árið 1992 þegar hann hóf störf hjá Streng sem tæknilegur ráðgjafi og forritari. Árið 1995 var hann einn af stofnendum fyrirtækisins Navís sem seinna varð að Landsteinar Ísland. Hjá því fyrirtæki gegndi Jón starfi yfirmanns hugbúnaðarþróunar þar til árið 2001 þegar hann, ásamt Bjarna Gauki Sigurðssyni og Sigmundi Unnari Traustasyni, flutti til Hollands og stofnaði fyrirtækið Landsteinar Nederland BV. Hjá Landsteinum Nederland BV gegndi Jón starfi framkvæmdastjóra allt fram til ársins 2009 þegar hann flutti aftur til Íslands. Árið 2007 sameinaðist Landsteinar Nederland breska fyrirtækinu K3 Business Technology Group. Á sínum ferli hefur Jón Hörður verið ábyrgur fyrir fjölda stórra sem smárra innleiðinga á Dynamics NAV bæði á Íslandi sem og annars staðar í heiminum. Hann var einn af frumkvöðlunum á bak við LS Retail og er einnig einn af lykilarkitektum þeirrar lausnar sem húsgagnaverlunarkeðjan IKEA notar víða um heim. Jón Hörður er með BS gráðu í Tölvunarfræði og MSc gráði í stærðfræði frá Ohio University.

  • Kristín Stefánsdóttir Kristín Stefánsdóttir Ráðgjafi
    512-4316
    kristinattreynd.is

     

  • Kristín Stefánsdóttir

    kristinattreynd.is

    Sími: 512 4316

    Kristín hóf störf hjá Reynd ehf í ágúst 2012 og starfar sem NAV ráðgjafi. Kristín er að ljúka MSc. gráðu í Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands þar sem hún tók einnig BSc. gráðu í sömu grein. Kristín starfaði við tölvunarfræðikennslu við Háskóla Íslands samhliða námi haustönn 2011. Þar áður var hún í hlutastarfi hjá Vegagerðinni, einnig samhliða námi, við verkbókhald og fjárhagsbókhald.

  • Páll Bjarnason Páll Bjarnason Hugbúnaðarsérfræðingur
    512-4304
    pallattreynd.is

     

  • Páll Bjarnason

    pallattreynd.is

    Sími: 512 4304

    Páll hóf störf hjá Reynd ehf í ágúst 2012 og starfar sem hugbúnaðarsérfræðingur.

  • Sigríður Jónsdóttir Sigríður Jónsdóttir Ráðgjafi
    512-4311
    sirryattreynd.is

     

  • Sigríður Jónsdóttir

    sirryattreynd.is

    Sími: 512 4311

    Sirrý hóf störf hjá Reynd ehf í júní 2012 og starfar sem NAV ráðgjafi. Sirrý hefur áratuga reynslu í smásölugeiranum bæði í matvöru og sérvöru þar sem hún starfaði sem vöruflæðis- og birgðastjóri hjá Hagkaup í 8 ár og í matvöruverslunum í 15 ár. Sirrý hefur mikla reynslu af notkun Navision viðskiptakerfis og sá m.a um að þróa og innleiða innkaupakerfi í Navision fyrir Hagkaup sérvöru sem notað er í dag og sá um innleiðingu og verkefnastjórnun á netverslun Hagkaups. Sirrý hefur sterkan grunn í bókhaldi og áætlanagerð og rak sitt eigið fyrirtæki í 6 ár. Sirrý er með M.Sc. í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum á Bifröst og kennaramenntun frá Kennaraháskóla Íslands og hefur góða reynslu af kennslu og námskeiðahaldi.

  • Hrafnkell Sigurðsson Sigurður Hrafnkell Sigurðsson Hugbúnaðarsérfræðingur
    512-4303
    keliattreynd.is

     

  • Sigurður Hrafnkell Sigurðsson

    keliattreynd.is

    Sími: 512 4303

    Sigurður Hrafnkell er einstaklega fjölhæfur forritari og hefur forritað í flestum forritunarmálum sem hafa verið notuð sl. 20 ár eða svo. Sigurður Hrafnkell komst fyrst í tæri við Microsoft Dynamics NAV árið 1998 þegar hann hóf störf hjá Landsteinum Íslandi og varð þar mjög fljótt lykilmaður, ekki síst vegna fjölhæfni sinnar og hæfileika til að leysa hin flóknustu mál. Sigurður Hrafnkell var einn af aðalforriturum við gerð LS Retail lausnarinnar sem á þeim tíma hét Landsteinar Retail og er hann til dæmis aðalhöfundur gagnaspeglunartólsins sem nefnt er Data Director og er hjá þúsundum viðsktipavina um allan heim. Árið 2007 hóf Sigurður Hranfkell störf hjá Landsbanka Íslands. Í upphafi var hann hluti af hugbúnaðarteymi innan bankans sem sá um forritun og innleiðingar á lausnum fyrir kjarnakerfi bankans sem keyra á Unix. Sigurður Hrafnkell vann síðar við forritun á vefgáttum, sem gera ýmsum utanaðkomandi lausnum kleift að hafa rafræn samskipti á XML formi við kerfi bankans. Sigurður Hrafnkell er með BSc gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

  • Snorri Sigurðsson Snorri Sigurðsson Verkefnastjóri
    512-4300
    snorriattreynd.is

     

  • Snorri Sigurðsson

    snorriattreynd.is

    Sími: 512 4300

    Snorri hóf störf hjá Reynd í Október 2012. Snorri lauk MSc. Gráðu í rekstrarverkfræði frá DTU í Danmörku með áherslu á tækniþróun. Árin 2009 til 2010 starfaði Snorri hjá Skjal Þýðingarstofu og bar ábyrgð á ráðningu, skráningu, flokkun, vali og allri umsjón af undirverktökum. Snorri fór svo til Icepharma sumarið 2011 þar sem hann bar ábyrgð á umsjón tölvutengdra verkefna. Meðal verkefna sem Snorri hefur unnið að má nefna verkefni fyrir Össur varðandi opna nýsköpun (Open innovation). Snorri hefur töluverða reynslu af ráðgjöf og verkefnastjórnun

  • Stefán Jónsson Stefán Jónsson Hugbúnaðarsérfræðingur
    512-4315
    stefanattreynd.is

     

  • Stefán Jónsson

    stefanattreynd.is

    Sími: 512 4315

    Stefán Jónsson hefur margra ára reynslu við NAV forritun og hefur komið að uppsetninga fjölda kerfa hér á landi. Stefán er einstaklega fjölhæfur forritari og hefur til að mynda unnið við uppsetningu og forritun á hinum ýmsu kerfum til að mynda: framleiðslu, afurða, tolla ,tollamiðlara, flutninga, vöruhúsa, XML samskipti, rekstrarleigu, sjávarútvegis, launa og starfsmanna. Árið 2000 hóf Stefán störf hjá Element þar sem hann vann mest fyrir Osta og smjörsöluna og Sláturhús KS. Árin 2002 til 2007 starfaði Stefán hjá Maritech þar sem hann var einn af lykilmönnum fyrirtækisins í Dynamics NAV ásamt því að hafa umsjón með fjölmörgum kerfum. Stefán ákvað að reyna fyrir sér hjá Efoqus árin 2007 til 2009 þar sem markhópurinn fyrir NAV var bílaumboð og bankar. Eftir það fór Stefán aftur á kunnugar slóðir hjá Maritech þar sem forritun og uppsetning á nýjum kerfum tók við. Hann starfaði þar til mars 2011 þegar hann hóf störf hjá Reynd.

  • Sunna Guðmundsdóttir Sunna Guðmundsdóttir Ráðgjafi
    512-4300
    sunnaattreynd.is

     

  • Sunna Guðmundsdóttir

    sunnaattreynd.is

    Sími: 512 4300

    Sunna hóf störf hjá Reynd október 2012. Sunna er með BSc. í Hátækniverkfræði frá HR. Árin 2008-2012 starfaði Sunna hjá bókhaldsþjónustunni Grófargili í sumarvinnu, en þar sinnti hún gagnaskráningu, fjárhagsbókhaldi og gjaldkerastörfum. 2010-2011 vann Sunna á taugarannsóknarstofunni RU Neurolab, þar sem hún forritaði og sá um uppsetningu á búnaði auk þess sem vinnslu við greiningu gagna og framsetningu niðurstaðna.

  • Tryggvi Hafstein Tryggvi Hafstein Yfirmaður þjónustu og ráðgjafar
    512-4302
    tryggviattreynd.is

     

  • Tryggvi Hafstein

    tryggviattreynd.is

    Sími: 512 4302

    Tryggvi Hafstein hefur áralanga reynslu í stjórnun, fjármálum, verkefnisstjórnun, ferlagreiningu og innleiðingu á fjárhagskerfum. Hann er einn af best þekktu einstaklingum á Íslandi á sínu sviði enda hefur hann komið að óhemju fjölda innleiðinga á Microsoft Dynamics NAV hér á landi sl. 13 ár. Tryggvi hóf feril sinn hjá Ríkiskaupum þar sem hann var m.a. yfirmaður innkaupa og útboða. Einnig stýrði hann innleiðingu á Fjölni, forvera Dynamics NAV hjá Ríkiskaupum á sama tíma. Árið 1997 hóf hann störf sem ráðgjafi hjá Landsteinum Íslandi og tók fljótlega við stöðu yfirmanns ráðgjafadeildar. Hann starfaði þar allt til í mars 2010 þegar hann hóf störf hjá Reynd. Tryggvi er með MSc gráðu í viðskiptafræði af endurskoðendasviði frá Háskóla Íslands. Hann er einnig vottaður verkefnisstjori frá The International Project Management Association.

  • Þorvaldur Baldurs Þorvaldur Baldurs Hugbúnaðarsérfræðingur
    512-4314
    thorvaldurbattreynd.is

     

  • Þorvaldur Baldurs

    thorvaldurbattreynd.is

    Sími: 512 4314

    Þorvaldur hóf störf hjá Reynd ehf í maí 2012 og starfar sem forritari og hefur gífurlega reynslu í NAV heiminum.

  • Þórður Gunnarsson Þórður Gunnarsson Hugbúnaðarsérfræðingur
    512-4310
    thordurattreynd.is

     

  • Þórður Gunnarsson

    thordurattreynd.is

    Sími: 512 4310

    Þórður hóf störf hjá Reynd ehf árið 2011 og starfar sem forritari. Þórður er með víðtæka reynslu sem forritari í hinum ýmsu forritunarmálum ásamt haldgóðri þekkingu á gagnagrunnum. Þórður hefur starfaði áður hjá Point Transaction Systems á Íslandi við hönnun og forritun á kreditkortalausnum sem og gagnagrunnsforritun, hann vann einnig hjá Netráðgjöf 2009 þar sem hann sinnti ráðgjöf og þjónustu til viðskiptavina við markaðssetningu á netinu. Einnig hefur Þórður starfað hjá Ölgerðinni Egill Skallgrímsson, Eimskip hf, Vífilfelli og Sól – Víking hf. Þórður er með diplóma í Iðnrekstrarfræði frá Tækniskóla Ísland og Bsc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.